iPhone á $199 goðsögnin

Þetta er mjög útbreiddur misskilningur á að það sé hægt að fá iPhone á $199, en það er því miður ekki satt.

Úti í Bandaríkjunum er auglýst $199 fyrir iPhone en skilyrðið er að þú skuldbindir þig í dýran 2 ára áskriftarsamning við AT&T og líka að þú sért með bandarískt visa kort.

Raunverulegt verð fyrir að eiga og nota iPhone í 2 ár  úti í BNA og hér heima hjá NOVA er í raun reiknað svona:

Segjum að þú talir fyrir 400 mínútur á mánuði og sendir 50 SMS á mánuði.

iPhone 3GS hjá AT&T: Þú borgar $199 við afhendingu og svo $80 á mánuði í 2 ár, samtals (199+80*24)*130 eða um 275 þúsund kr.

iPhone 3GS hjá Nova: Þú borgar 140þkr við afhendingu, og svo gróflega reiknað 490 (mánaðargjald) +400 * 14.9 (mínútuverð) +100*4.9 (upphafsgjald á 100 símtölum) + 10*50 (50 SMS) = 178800 eða um 320 þúsund kr.

Íslendingar eru enn að borga hærra verð en Kanarnir (reyndar eins og aðrar Evrópuþjóðir eru að gera, almennt er allur tæknibúnaður dýrari í Evrópu en BNA) og er munurinn um 17%.

Það verður líka að athuga í NOVA er hægt að kaupa alveg opinn iPhone meðan að iPhoneinn sem maður kaupir hjá AT&T er læstur hjá þeim og þar af leiðandi ekki hægt að nota hjá öðrum fyrirtækjum nema aflæsa honum sérstaklega með meðfylgjandi veseni.

4 Responses to iPhone á $199 goðsögnin

  1. Þetta er reyndar ekki alveg rétt hjá þér með NOVA – þar er hægt að fá 1000 mín, 500 sms og 250 mb. á 6990 pr. mán.

    • Já það er rétt hjá þér! Það er ekki alveg rétt heldur með AT&T lengur. Ég ætlaði að uppfæra póstinn því akkúrat seinna um kvöldið sem ég skrifaði hann bárust fregnir um að byrjað væri að selja iPhone án samnings til hvers sem vildi. iPhone kostar þá núna $499 fyrir 3G, 3GS 16GB $599 og 3GS 32GB $699.

  2. Já, þannig að samanburðarverð Ísland vs. USA er 146900 m.vsk. vs. 76672 án Tax. Verðið hérna er 117050 án vsk. eða 40378 ISK. Helvíti mikið. Ef þeir eru að kaupa símann á útsöluverði í USA þá eru þeir að leggja rúmlega 1,5 á hann plús vsk. Hann er þó ólæstur sem USA síminn er ekki.

  3. Sigfús Elvar

    Ertu að segja mér að maður geti iphone 3gs 32gb á 91 þúsund í bandaríkjunum án samnings ?

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s