Amazon Kindle til Íslands

Amazon Kindle til Íslands

Amazon Kindle til Íslands

Amazon Kindle er tæki sérhannað til að lesa bækur. Helst hefur það þann kost fram yfir hefðbundnar ferðatölvur að á honum er eInk skjár sem er statískur og auðveldari fyrir augun að lesa en t.d. LCD eða túbuskjáir.

Það ætti að gleðja einhver hjörtu að það er nú hægt að kaupa Amazon Kindle, fá hann sendan til Íslands og meira en það þá virkar 3G þjónustan á Íslandi endurgjaldslaust! Það virkar þannig að Amazon hefur gert samning við AT&T sem hefur svo roaming samninga við símafyrirtækin á Íslandi.

Hann kostar samt sitt, eða $279 út úr búð í BNA. Við það bætist svo sendingarkostnaður og vsk þannig að ætli hann sé ekki kominn heim á 50-60 þúsund miðað við 24.5% vsk en reyndar var bara 7% virðisaukaskattur (eins og á bókum) tekinn af mínum iRex iLiad árið 2006.

Kindle bækur eru samt enn frekar dýrar miðað við systur sínar úr dauðum við. T.d. er bókarútgáfan af Wikinomics ódýrari en Kindle útgáfan. Svo er líka spennandi að sjá hvað Apple gerir.

UPPFÆRSLA:

Nú er Kindle DX (stærri týpan) til fyrir Ísland!

2 Responses to Amazon Kindle til Íslands

  1. Sæll Guðbergur

    Ég veit að þetta er gömul færsla en ég vona að þú sjáir þessa athugasemd og getir svarað mér einu.

    Ég er að hugsa um að kaupa kindle en er að velta fyrir mér hvort að það sé hægt að kaupa bækur auðveldlega í gegnum hann á Íslandi? Hef nefninlega heyrt að maður þurfi bandarískt kort og heimilisfang til þess.

  2. Sæl

    Ég mæli hiklaust frekar með að bíða eftir iPad frá Apple sem er ný komið út. http://www.apple.com/ipad.

    Annars þá þori ég ekki að segja 100% með hitt þar sem ég hef ekki prufað það sjálfur, en mér skilst að það sé hægt að kaupa bækur í Kindle búðinni með hvaða visa korti sem er.

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s