Við Sigga fengum okkur geggjaðan ís í dag! Ísinn heitir Jöklaís og við keyptum hann í búð sem heitir Frú Lauga á Laugalæk, sem er líka mjög skemmtilegur bóndamarkaður. Ef e-ð er að marka þessa frétt þá byrjaði bóndi á Höfn að búa til ísinn í fyrra og áætlar að framleiða um 20 þúsund lítra á ári. Jöklaís er heldur dýr en mjög massívur og ég borða minna af honum en t.d. Vesturbæjarís (sem er enn í íssæti #1). Í umbúðunum sem við keyptum kostar ísinn 1.400kr/lítrinn og skv. RÚV fréttinni þýðir það að bóndinn er að velta u.þ.b. 30 milljónum á ári á honum. Flott einstaklingsframtak sem ég vona að gangi vel. Hægt að sjá viðtal við bóndann og myndir ef færslan er skoðuð.
Advertisement

